8 Október 2010 12:00

Á síðustu fimm árum hafa útlagagengin (e. Outlaw Motorcycle Club Gang, OMCG)   Hells Angels, Outlaws og Bandidos aukið ört umsvif sín í Evrópu. Er nú svo komið að í álfunni starfa um 425 klúbbar sem tilheyra samtökum þessum.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Evrópulögreglunni (Europol).

Í mörgum ríkjum Evrópu er litið svo á að vélhjólaklúbbar þessir feli í sér ógn á landsvísu og víða telja yfirvöld það mikilvægt forgangsmál að hefta umsvif þeirra á vettvangi skipulagðrar glæpastarfsemi.

Á síðustu fimm árum hafa rúmlega 120 klúbbar verið myndaðir í Evrópu sem fylgja Hells Angels, Outlaws og Bandidos að málum. Aukin umsvif Hells Angels í Suðaustur-Evrópu eru talin sérstakt áhyggjuefni. Í tilkynningu Evrópulögreglunnar segir meðal annars:

„Alvarleg glæpastarfsemi fylgir umsvifum útlagagengja í Evrópu. Við hjá Europol höfum áhyggjur af aukinni útbreiðslu þeirra og leggjum nú aukna áherslu á að fylgjast með umsvifum þeirra. Við erum staðráðin í að uppræta ólöglegt athæfi þeirra í samvinnu við löggæsluyfirvöld í Evrópu,“ segir Rob Wainwright, forstjóri Europol.