14 September 2005 12:00

Síðdegis í dag varð alvarlegt vélhjólaslys við Lyngás í Rangárþingi ytra.  Þrír ungir drengir á aldrinum 13 til 14 ára voru á númerslausum vélhjólum inn á lokuðu kartöflugarðasvæði og óku eftir vegslóða þegar fjórði aðilinn, 13 ára gamall drengur, er sat á spítnahrúgu og fylgdist með akstri hinna þriggja varð fyrir einu vélhjólanna með þeim afleiðingum að hann hlaut a.m.k. opið beinbrot á fótlegg fyrir ofan ökla.  Slasaði drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið í sjúkrahús.  Læknir frá Hvolsvelli kom á staðinn.  Ökumaður vélhjólsins slapp án meiðsla.  Ekki þarf að taka fram að ökuréttindi þarf til að mega stjóran vélhjólum sem þessum auk þess sem á þeim eiga að vera númeraplötur, hjólin skráð og tryggð.  Til að fá útgefin ökuréttindi á minni vélhjól þarf einstaklingurinn að vera orðinn 15 ára gamall.