24 Október 2005 12:00

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála hjá lögreglu. Helsta markmið reglnanna er að taka af tvímæli um vafaatriði við rannsókn þessara brota og að skýra betur hlutverk lögreglunnar við meðferð þeirra.  Með breytingum sem verklagsreglurnar kveða á um ætti að nást betri yfirsýn yfir þessa tegund ofbeldisbrota, en með nýju málaskrárkerfi lögreglu hefur skapast aukinn möguleiki á nákvæmari skráningu.

Verklagsreglurnar má nálgast hér.