6 Nóvember 2008 12:00

Lögreglan hvetur fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir, ekki síst í íbúðahverfum. Innbrot á heimili eiga sér oft stað að degi til og þá geta upplýsingar, t.d. frá nágrönnum, ráðið miklu. Það sem fólki kann að finnast lítilfjörlegt getur einmitt orðið til þess að upplýsa mál. Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum og bifreiðum en gott er að skrifa slíkt hjá sér ef fólk tekur eftir einhverju óvenjulegu í sínu nánasta umhverfi. Sama gildir um bílnúmer en slíkar upplýsingar geta komið lögreglu á sporið. Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.