9 Október 2014 12:00

Par var handtekið á Hólmavík í gærdag, þá nýkomið til þorpsins.  Það var í annarlegu ástandi og hafði verið tilkynnt um undarlega hegðun þess.  Hafði farið í leyfisleysi inn í húsnæði fyrirtækja á staðnum og gert sig líklegt til að taka þar verðmæti. Í fórum þess fundu lögreglumenn allnokkurt magn fíkniefna, eða um 50 gr. af efni sem talið er vera amfetamín og um 6 gr. af kannabisefnum.  Í ljósi efnismagnsins grunar lögreglu að það hafi verið ætlað til sölu. Auk þessa var parið með tvo hnífa á sér.

Lagt var hald á efnin og bitvopnin.  Parið var yfirheyrt og því sleppt lausu seinni partinn í gær.  Fólkið hefur ítrekað komið við sögu lögreglu vegna ýmissa brota, s.s. fíkniefnamála og ofbeldisbrota.

Minnt er á upplýsingasíma lögreglu, 800 5005, sem allir geta hringt í og gefið upplýsingar, undir nafnleynd, um alla meðhöndlun fíkniefna á landinu.