27 Júlí 2009 12:00

Bílamiðstöð ríkislögreglustjórans stefnir að því að viðhalda endurnýjun og uppbyggingu á ökutækjum lögreglunnar eins og verið hefur á undanförnum árum. Í byrjun mánaðarins hófst stendsetning á nýrri og öflugri lögreglubifreið sem tekin verður í notkun hjá lögreglustjóranum á Sauðárkróki. Þetta er Hyundai Santa Fe sjálfskiptur, disel turbo, með öflugum staðalbúnaði og fullkomnum sérbúnaði fyrir lögregluna.

Umdæmi lögreglunnar á Sauðárkróki er víðfemt og mun bifreiðin koma að góðum notum við margvísleg verkefni sem lögreglumenn sinna í umdæminu.