23 Ágúst 2004 12:00

Efnahagsbrotadeild hafa borist upplýsingar frá fjölmörgum aðilum, einstaklingum og fyrirtækjum, um að þeir hafi fengið tölvupóstur sem bar með sér að vera sendur frá Citibank. Í tölvupóstunum er nafn CityBank ranglega stafsett sem  Citibank. Í tölvupóstum þessum er viðtakandanum gert að senda upplýsingar um pin-númer kredit- og/eða debetkorta sinna í bankanum vegna baráttu bankans gegn fjársvikum vegna endurtekinna hryðjuverkaárása á gagnagrunn bankans, eins og það er orðað í póstinum.

Efnahagsbrotadeild vill vara við umræddum tölvupóstsendingum sem stafa ekki frá CityBank og er sendur út í þeim tilgangi að komast yfir “pin-númer” kredit- og debetkorta viðtakendanna að öllum líkindum í þeim tilgangi að misnota þau til að svíkja út fé.

Efnahagsbrotadeild