18 Apríl 2017 14:33
Tilkynnt var um eina líkamsárás í vikunni. En hún mun hafa átt sér stað um kl.04:00 aðfaranótt 16. apríl sl. í miðbæ Ísafjarðar. Einn maður hlaut áverka en þó ekki alvarlega. Tveir menn voru handteknir og færðir í fangaklefa. Þeir eru grunaðir um líkamsárásina. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni.
Alls voru 93 ökumenn kærðir fyrir að aka yfir leyfilegum hámakshraða. Sá sem hraðast ók var mældur á 189 km hraða í Skötufirði um miðjan dag þann 13. apríl. Slíkt brot varðar við ökuréttindasviptingu ásamt allhárri sekt. Flestir ökumannanna voru stöðvaðir í Ísafjarðardjúpi og í Strandasýslu.
Einn ökumaður var kærður fyrir lagningarbrot. Það var í miðbæ Ísafjarðar. Akstur annars ökumanns var stöðvaður þar sem viðkomandi var með útrunnin ökuréttindi.
Aðstoð björgunarsveita var óskað í nokkur skipti í liðinni viku. Í öllum tilvikum var um fastar bifreiðar í snjó á fjallvegum.
Aðeins var tilkynnt um eitt umferðaróhapp í vikunni, en flutningabifreið og snjóruðningstæki (snjóblásari) rákust saman á Steingrímsfjarðarheiði seinni part 17. apríl sl. Engin slys urðu á vegfarendum en flutningabifreiðin var óökufær eftir atvikið.
Mikil umferð var um Vestfirði síðustu daga. Lögreglan var með aukinn viðbúnað bæði hvað umferðareftirlit og fíkniefnaeftirlit varðar. Fíkniefnahundurinn Tindur vann, sem fyrr með lögreglumönnum. Má segja að allt hafi gengið vel fyrir sig og allir komið heilir heim. Allar samkomur sem voru í umdæminu, hvort heldur rokktónleikarnir Aldrei fór ég suður, skíðavikuviðburðir, dansleikir eða aðrir viðburðir gengu vel fyrir sig og almennt mikil ánægja með hvernig til tókst.