30 Ágúst 2016 15:59
Þann 23. ágúst óskaði starfsmaður Fiskistofu eftir aðstoð lögreglunnar vegna gruns um framhjálöndun í Bolungarvík. Það mál er til rannsóknar og ekki tímabært að gefa frekari upplýsingar um það mál.
Kl.02:23 aðfaranótt 24. ágúst barst lögreglunni, í gegnum Neyðarlínuna, hjálparbeiðni frá þremur erlendum ferðamönnum sem voru þá nýlega komnir til hafnar á Suðureyri með erlendri skútu. Ferðamenn þessir höfðu deilt við skipstjóra skútunnar sem þeir sögðu ölvaðan og æstan. Skipstjórinn hafði haft í hótunum við þremenningana er þeir gengu frá borði. Ferðamönnum þessum þótti standa ógn af skipstjóranum sem hafi minnt þá á að hann væri með skotvopn um borð. Í ljósi þessarar tilkynningar þótti óforsvaranlegt að lögreglan færi óvopnuð um borð í skútuna. Lögreglumenn fóru með viðeigandi öryggisbúnað og vopn til Suðueyrar og tryggðu ástandið meðan sérsveit var flutt með þyrlu LHG til Ísafjarðar og þaðan á vettvang. Kl.06:38 voru sérsveitarmenn komnir um borð í skútuna og skipstjórinn handtekinn. Þrjú vopn voru um borð í skútunni. Skipstjórinn var fluttur á Ísafjörð og af honum látin renna áfengisvíman uns hægt var að yfirheyra hann. Aðrir áhafnarmeðlimir, alls fjórir talsins, voru yfirheyrðir þennan sama dag. Í lok þessa sama dags var málið talið upplýst. Skipstjórinn féllst á að gangast við lögreglustjórasátt vegna brots á reglum um tilkynningaskyldu skipa og eins vegna meðferðar á þeim vopnum sem fundust um borð. Skipstjórinn var látinn laus að þessu loknu og vopnin afhent tollgæslunni.
Fimmtudaginn 25. ágúst, kl.17:00, hafði lögreglan á Vestfjörðum og áhöfn þyrlu LHG afskipti af áhöfn lítils fiskibáts sem kom þá að landi í Norðurfirði á Ströndum. Stjórnstöð LHG hafði vísað bátnum til næstu hafnar, Norðurfirði. En hann hafði verið að veiðum án gilds haffærisskírteinis, auk þess sem lögskráningu var ábótavant. Þegar afskiptin voru höfð af áhöfninni, tveimur mönnum, vöknuðu grunsemdir um að þeir væru báðir undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir voru handteknir og færðir með þyrlu til Hólmavíkur þar sem viðeigandi rannsókn og sýnatökur fóru fram. Við þessa framkvæmd nutu landhelgisgæslumenn og lögreglan á Vestfjörðum aðstoðar hjá lögreglumanni sem tilheyrir lögreglunni í Borgarfirði og Dölum.
Í vikunni hafði lögreglan afskipti af ökumanni bifreiðar sem var með kerru í eftirdragi. Kerran með farmi á var það fyrirferðamikil að hliðarspeglar dugðu ekki svo útsýni væri fullnægjandi. Þá var kerran vanbúin hvað ljós varðar. Ökumaðurinn má búast við sekt vegna þessa. Lögreglan vill minna á mikilvægi þess að æki sem þetta uppfylli skilyrði sem þarf til að vera í almennri umferð.
Ökumaður sem leið átti um götur Ísafjarðar var stöðvaður þegar lögreglumenn urðu þess varir að tveir hjólbarðar bifreiðarinnar voru negldir vetrarhjólbarðar. Ökumaður mun fá sekt fyrir athæfið. Hér virðist um algjöran trassaskap að ræða.
Tilkynnt var um fimm tilvik þar sem ekið var á búfé í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum.
Alls voru 17 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku.
Lögreglan stöðvaði einn ökumann í vikunni, grunaðan um að aka undir áhrifum áfengis. Þetta var í Önundarfirði aðfaranótt 28. ágúst.
Skráningarnúmer voru tekin af 7 ökutækjum sem ekki höfðu verið færðar til lögbundinnar skoðunar.
Tilkynnt var um þrjú vinnuslys í vikunni. Eitt í fiskvinnslufyrirtæki þar sem starfsmaður meiddist á hendi í færibandi, annað á löndunarbryggju þegar lyftara var ekið á manneskju sem gekk um vinnusvæðið og það þriðja við garðslátt þar sem lítil sláttutraktor valt yfir stjórnandann. Allir þessir slösuðu voru fluttir á heilbrigðisstofnunina á Ísafirði en hlutu ekki alvarleg meiðsl.