10 Júlí 2017 15:15
Eldur varð laus í spennimannvirki Orkubús Vestfjarða í Skötufirði seint að kveldi 7. júlí. Lögregla og slökkvilið fór á vettvang og einnig starfsmenn Orkubúsins. Tildrög þessa eru til rannsóknar.
Lögreglu bárust alls 9 tilkynningar í vikunni um að ekið hafi verið á búfé á vegum í umdæminu. Flestar tilkynningarnar vörðuðu atvik í Ísafjarðardjúpi.
Aðfaranótt 4. júlí barst lögreglu tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í húsnæði Grunnskólans á Ísafirði, við Austurveg. Þegar lögreglan kom á vettvang kom í ljós að búið var að brjótast þar inn og hafði lögreglan upp á öðrum þeirra sem það gerði. Hinn kom í leitirnar skömmu síðar. Játning liggur fyrir hjá þessum tveimur aðilum að hafa brotist inn í byggingu skólans og valdið einhverju tjóni þar. Aðilarnir voru ölvaðir.
Tilkynnt var um umferðaróhapp í göngunum milli Bolungarvíkur og Hnífsdals um miðjan dag þann 3 . júlí. Krani vörubifreiðar, sem ekið var inn í göngin frá Bolungarvík, rakst upp í hæðarslá. Hæðarsláin féll niður og á fólksbifreið sem þarna var á ferð einnig. Engin slys urðu á vegfarendum en töluvert tjón á fólksbifreiðinni og umferðarmannvirkjum í göngunum.
Kl.15:00 föstudaginn 7. júlí barst tilkynning í gegnum Neyðarlínu um umferðarslys í göngunum undir Botnsheiði (leiðin til og frá Súgandafirði). Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn, auk læknis, fóru á vettvang, enda var tilkynnt um harðan árekstur og að fimm aðilar væru slasaðir. Bifreiðar sem komu úr gagnstæðum áttum rákust saman. Þess skal getið að á þessum stað eru göngin einbreið með útskotum öðru megin.  Ökumenn og farþegar voru fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði. Enginn þó með lífshættulega áverka. Tveir þessara aðila voru þó fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar. Málið er til rannsóknar.
63 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu. Flestir voru þeir stöðvaðir á Djúpvegi og í Strandasýslu.
Einn ökumaður var kærður í vikunni, grunaður um ölvun við akstur. Höfð voru afskipti af þeim aðila í Bolungarvík að morgni 5. júlí.