19 Október 2011 12:00

Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á þrítugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 100 grömm af kannabisefnum sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.