20 Október 2011 12:00

Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á fertugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 30 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Er þetta í fimmta skipti á stuttum tíma þar sem lögreglan á Akureyri stöðvar ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna og framkvæmir í framhaldinu húsleitir þar sem í öllum tilfellum hefur verið lagt hald á fíkniefni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.