16 Október 2008 12:00

Rétt fyrir kl.14:29 í gær varð vinnuslys á Ísafirði, þegar maður féll af vinnupalli.  

Maðurinn hlaut alvarlega áverka við fallið og var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði og þaðan á sjúkrahús í Reykjavík.  Hann lést af völdum áverkanna í morgun.

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og Vinnueftirlitsins.