11 Febrúar 2014 12:00

Sunnudaginn 2. febrúar sl., laust fyrir klukkan þrjú síðdegis, barst neyðarkall frá báti úti við Faxaflóa. „Báturinn er farinn að leka mikið og við erum að fara í flotgallana,” sagði m.a. í tilkynningunni. Brugðist var skjótt við og hófst mikil leit að bátnum, enda málið grafalvarlegt. Reynt var árangurslaust að ná aftur sambandi við tilkynnanda, en engar frekari upplýsingar voru um bátinn eða staðsetningu hans. Báturinn fannst ekki þrátt fyrir viðamikla leit, en grunur leikur á að um hafi verið að ræða vísvitandi ranga tilkynningu senda til vaktstöðvar neyðarsímsvörunar. Málið er nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem birtir hér að neðan hljóðupptöku af neyðarkallinu. Þeir sem þekkja röddina og vita hver þarna talar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

NEYÐARKALL