13 Mars 2016 05:37

Fréttatilkynning frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra

Um kl. 1:30  fékk lögreglan á Norðurlandi eystra á Akureyri tilkynningu í gegnum Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra frá íbúa fjölbýlishús í Naustahverfi um að heyrst hefðu skothvellir frá nærliggjandi íbúð.

Lögreglan ásamt sérsveitarmönnum staðsettum á Akureyri fóru þegar á staðinn og gerðar voru ráðstafanir til að fá frekari aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra og tryggja vettvang.  Búið er að loka nærliggjandi götum og hafa samband við íbúa sem næst búa.

Á þessari stundu er beðið frekari liðsauka frá sérsveit Ríkislögreglustjóra.

Ekki er unnt að gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu.

Viðauki við fréttatilkynningu

Kl. 5:25

Skömmu eftir komu liðsauka sérsveitar úr Reykjavík um kl. 5, var grunaður aðili handtekinn og vettvangur tryggður.  Viðkomandi var færður í fangageymslu lögreglunnar á Akureyri.  Verður hann yfirheyrður síðar í dag.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri mun nú hefja rannsókn á vettvangi.

Ekki er unnt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu.