1 Maí 2016 13:59

Laust eftir klukkan  hálf sex í morgun var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð til vegna tilkynningar um heimilisofbeldi  í húsi á Akureyri.  Tilkynnandi sem var kominn út úr húsinu  skýrði frá því að meintur gerandi hótaði að beita skotvopni.  Í ljósi þessara upplýsinga lokaði lögreglan nærliggjandi götum og vopnuðust vakthafandi lögreglumenn. Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og Sérsveit Ríkislögreglustjóra kölluð út.  Skömmu eftir þetta kom meintur gerandi vopnlaus  út úr íbúðinni og var hann  þá handtekinn. Við leit í íbúðinni fundust tvær haglabyssur og nokkurt magn skotfæra.  Viðkomandi sem var undir áhrifum áfengis var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður seinna í dag.