9 Janúar 2007 12:00

Að gefnu tilefni vill embætti ríkislögreglustjóra taka fram að hvorki ríkislögreglustjóri né aðrir starfsmenn embættisins hafa bíla frá embættinu til afnota, hvað þá lúxusbíla, eins og gefið var til kynna í efnisþættinum „Frá degi til dags”, í Fréttablaðinu mánudaginn 8. janúar sl. Þar er fjallað um nýjan bíl lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og sagt að sjálfsagt hefði lögreglustjórinn „…getað valið sér einhvern lúxusbílinn, látið sérútbúa hann í takt við titla og borða og merkt lögreglunni. Það hefur til dæmis þekkst hjá embætti ríkislögreglustjóra.”

Fyrir utan bifreiðar sérsveitarinnar hefur embætti ríkislögreglustjóra fimm bifreiðar til afnota sem allar eru af Subaru gerð. Fjórar þessara bifreiða eru af árgerð 2000, ein þeirra er frá árinu 2003. Tvær bifreiðanna eru notaðar við almenn störf embættisins, rannsóknardeild ríkislögreglustjóra hefur eina bifreið til afnota og það sama á við um fjarskiptamiðstöð og bílamiðstöð embættisins. Þessar bifreiðar eru notaðar við dagleg störf starfsmanna embættisins bæði á höfuðborgarsvæðinu og á embættisferðum þeirra um landið.

Engir stjórnendur innan embættis ríkislögreglustjóra hafa bifreið frá embættinu til afnota og hafa aldrei haft.