8 Mars 2011 12:00

Mikið er um stöðubrot á höfuðborgarsvæðinu en um helgina hafði lögreglan afskipti af rúmlega eitt hundrað ökutækjum vegna þessa, aðallega á miðborgarsvæðinu en líka annars staðar í borginni og einnig í Kópavogi og Hafnarfirði. Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum en nú er 5000 kr. sekt vegna stöðubrots en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð.