6 Nóvember 2012 12:00

Enn gengur misvel að fá ökumenn, sem eiga erindi í Laugardalinn, til að nýta þau bílastæði sem þar eru og þá um leið að leggja ökutækjum sínum löglega. Á sunnudagskvöld, á meðan tónleikar fóru fram í Laugardalshöll, hafði lögreglan afskipti af um eitt hundrað ökutækjum (stöðubrot) vegna þessa, en á sama tíma var meira en nóg af bílstæðum við bæði Laugardalsvöll og Skautahöllina.