7 September 2006 12:00

Því miður er það nánast daglegur viðburður að lögreglan í Reykjavík hefur afskipti af fólki vegna fíkniefna. Nýverið kom upp slíkt mál sem þó tekur öðrum fram að því leyti að þar átti 11 ára drengur hlut að máli. Eftir því sem best er vitað mun þetta vera einsdæmi en í fórum drengsins fundust kannabisefni.

Drengurinn var tvísaga þegar lögreglan ræddi við hann. Fyrst sagðist hann hafa fundið fíkniefnin og ráðgerði að selja þau en við haldlagningu þeirra fullyrti drengurinn að hann gæti útvegað sér meira af fíkniefnum. 

Rétt er að ítreka að hér er um einsdæmi að ræða enda heyrir það til algjörra undantekninga ef unglingar yngri en 15 ára koma við sögu í fíkniefnamálum. Þess má jafnframt geta að þeir sem eru kærðir í fíkniefnamálum eru hlutfallslega flestir á aldrinum 18-20 ára og hefur svo verið undanfarin ár.