20 Ágúst 2008 12:00

Lögreglan haldlagði tvær loftbyssur í Reykjavík í gær. Loftbyssurnar voru í fórum tveggja 11 ára stráka sem viðurkenndu að hafa beint þeim að öðrum krökkum. Sem betur fer hlaust ekkert slys af að þessu sinni en í síðustu viku slapp unglingspiltur með skrekkinn þegar hann varð fyrir skoti úr loftbyssu í borginni. Það varð piltinum til happs að vera með gleraugu en skotið fór í þau en við það kom sprunga í annað sjónglerið.

Það skal ítrekað að loftbyssur eru ekki leikföng og eiga því ekki að vera í höndum barna og unglinga. Þótt í þeim séu plastkúlur geta þær unnið mikinn og óbætanlegan skaða. Rétt er líka að minna á að loftbyssur heyra undir vopnalög og að enginn fær skotvopnaleyfi nema að hafa náð 20 ára aldri. Þeir sem sækja um leyfi fyrir skotvopnum skulu jafnframt sækja námskeið í meðferð og notkun þeirra.