9 Febrúar 2012 12:00

112-dagurinn verður haldinn um allt land laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis. Efnt er til dagskrár í Smáralind og hjá viðbragðsaðilum um allt land. 112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu á sama tíma en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.

Fjölbreytt dagskrá í Smáralind

Almenningi er boðið að kynna sér starfsemi viðbragðsaðila í Smáralind kl. 11-17 á laugardaginn. Þar verður fjölbreytt dagskrá í boði; fólk getur kynnt sér starfsemi viðbragðsaðila, rætt við starfsfólk og sjálfboðaliða, kynnt sér skyndihjálp og skoðað margvíslegan búnað. Á staðnum verða meðal annars bílar slökkviliðs og lögreglu, sprengjubíll og vélmenni Landhelgisgæslunnar, bílar, bátar og fleiri tæki björgunarsveita. Þannig ætti fólk á öllum aldri að finna eitthvað við sitt hæfi.

Ljósmyndasýningin Útkall 2011

Úrval ljósmynda af hinum margvíslegu verkefnum viðbragðsaðila verður sýnt í Smáralind dagana 10.-17. febrúar. Þar er meðal annars að finna áhugaverðar myndir af lögreglu, slökkviliðsmönnum, björgunarsveitum, Rauða kross fólki og Landhelgisgæslunni að störfum árið 2011.

Athöfn í Smáralind kl. 14

Kl. 14 á laugardaginn verður stutt athöfn í göngugötunni í Smáralind og er öllum velkomið að vera við hana. Dagskrá:

·                     Ávarp: Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.

·                     Undirritun samnings um hjálparlið almannavarna.

·                     Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2011 afhent.

·                     Skyndihjálparmaður Rauða krossins 2011 útnefndur.

·                     Neyðarverði 112 veitt viðurkenning.

Hverjir standa að 112-deginum?

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu: Þau eru:

112, Barnaverndarstofa, Isavia, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og samstarfsaðilar um allt land.