11 Febrúar 2020 11:33

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag, 11. febrúar, eins og venjulega ár hvert. Að þessu sinni er sjónum beint að öryggi fólks í umferðinni. Til að minna á mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni verður útkallstækjum viðbragðsaðila lagt á áberandi stöðum við helstu umferðaræðar á höfuðborgarsvæðinu á mestu annatímum í umferðinni. Útkallstæki lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Rauða krossins og Landhelgisgæslunnar voru sýnileg við helstu umferðaræðar kl. 8.00-9.00 í morgun og verða aftur kl. 16.00-17.30 síðdegis í dag. Samstarfsaðilar 112-dagsins utan höfuðborgarsvæðisins grípa víða til sambærilegra aðgerða. Okkar fólk var víðs vegar um borgina, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Önnur þeirra er tekin á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og hin á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu.