2 Apríl 2008 12:00

Sautján ára stúlka var tekin fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, í nótt en bíll hennar mældist á 153 km hraða. Á þessum hluta vegarins er 90 km hámarkshraði en aðspurð um aksturslagið sagðist stúlkan vera að flýta sér í bæinn! Hún hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu. Nokkrir aðrir voru teknir fyrir hraðakstur í umdæminu í gær en brot þeirra voru ekkert í líkingu við þetta.