11 September 2009 12:00

Átta karlar á þrítugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu. Alls hafa 25 manns verið handteknir vegna rannsóknarinnar en fólkið er allt af erlendum uppruna. Lagt hefur verið hald á mikið af þýfi en verðmæti þess nemur milljónum króna. Lögreglan vinnur nú að því að koma hinum stolnu munum aftur í réttar hendur en slíkt er tímafrekt og eru borgarar beðnir um að sýna því skilning. Ljóst er að þýfið er úr mörgum innbrotum en það var endurheimt við húsleitir á ýmsum stöðum. Lætur nærri að húsleitir vegna rannsóknarinnar séu tæplega 20. Rannsókn málsins miðar vel en að henni hafa komið þrjár lögreglustöðvar í umdæminu auk annarra starfsmanna embættisins. Á meðfylgjandi myndum má sjá hluta af þýfinu sem lögreglan hefur haldlagt.