10 Desember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 2,4 kg af marijúana og 210 kannabisplöntur. Um var að ræða svokallaða vatnsræktun en plönturnar voru flestar mjög stórar og í fullum blóma. Áður höfðu fundist rúmlega 100 grömm af marijúana í íbúð í austurborg Reykjavíkur en málin tengjast. Karl á fimmtugsaldri, sem var handtekinn á síðartalda staðnum, hefur játað aðild að þeim báðum.

Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan kannabisræktun í tveimur íbúðum í sama húsi í vesturbæ Reykjavíkur. Þar fundust 110 kannabisplöntur og voru þær á lokastigi ræktunar. Grunur leikur á að sami aðili sé ábyrgur fyrir ræktun þessara kannabisplantna en rannsókn málsins er ekki lokið.

Í þessum málum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu því lagt hald á 2,5 kg af marijúana og 320 kannabisplöntur. Sem fyrr minnir hún á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.