23 Ágúst 2016 11:13

Eins og áður hefur komið fram gekk umferðin á menningarnótt ágætlega. Hún gekk þó hægt á köflum og má þar sérstaklega nefna Vatnsmýrarveg og Hringbraut, en margir kusu að aka þar um á leið í miðborgina og því hefði umferðin geta dreifst betur. Á sama tíma var minna álag á Sæbraut og nóg af bílastæðum í Borgartúni og nágrenni þess og það ætti fólk af hafa hugfast fyrir næstu menningarnótt. Sem fyrr áttu sumir ökumenn erfitt með að virða lokanir, en það jákvæða á menningarnótt var hins vegar sú staðreynd að stöðubrotum snarfækkaði frá fyrri árum. Þau voru nú um 300, sem telst í minna lagi enda hafa stöðubrot á menningarnótt að jafnaði verið um eitt þúsund og rúmlega það.