22 Október 2007 12:00

Þrjátíu og fjórir einstaklingar brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar um helgina. Nítján gerðust sekir um þetta athæfi aðfaranótt laugardags og fimmtán aðfaranótt sunnudags. Þetta voru þrjátíu og þrír karlar og ein kona, 18 ára. Karlarnir eru langflestir á þrítugsaldri, eða 25, og fjórir eru undir tvítugu. Elsti karlinn er hins vegar á sextugsaldri. 

Hinir brotlegu höfðu í frammi ýmiskonar ólæti og óspektir en þeim var boðið að ljúka málinu með sektargreiðslu. Margir tóku þann kostinn en meðal þess sem fólkið gerði af sér var að kasta af sér þvagi á almannafæri, fleygja rusli og brjóta glös. Af öðrum brotum má nefna að einn var tekinn fyrir að veitast að lögreglumanni, annar fyrir að klifra upp á bíl og sá þriðji fyrir að gyrða niður um sig buxurnar.