11 Mars 2022 11:28

Brot 58 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 23. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 150 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.