13 Nóvember 2006 12:00

Fimmtíu og sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Flest voru minniháttar en í fimm tilfellum var fólk flutt á slysadeild. Í níu tilvikum var um afstungur að ræða. Allmargir voru stöðvaðir fyrir hraðakstur en einn þeirra var tekinn í Ártúnsbrekkunni á rúmlega 120 km hraða. Sá reyndist jafnframt vera ölvaður.

Alls voru ellefu ökumenn stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Einn var tekinn fyrir að aka undir áhrifum lyfja og annar var undir áhrifum fíkniefna. Þá stöðvaði lögreglan för sex ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Einn þeirra var nú tekinn fyrir þær sakir öðru sinni.

Þrettán ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi og fjórir fyrir að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. Þrír ökumenn voru teknir fyrir að spenna ekki beltin og einn fyrir að vanrækja merkjagjöf.