25 Júní 2018 15:14

Um 90 fíkniefnamál komu upp í tengslum við tónlistarhátíðina Secret Solstice, sem haldin var í Laugardalnum um helgina. Aðallega var lagt hald á kannabisefni, en einnig ætlað kókaín, amfetamín, MDMA og e-töflur svo önnur fíkniefni séu nefnd. Við eftirlitið naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar tveggja fíkniefnaleitarhunda og reyndust þeir mjög vel. Eitthvað var um pústra á hátíðinni, en níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu. Eins og vænta mátti var ástand gesta misjafnt og þurfti að fjarlæga einhverja þeirra af svæðinu af þeirri ástæðu. Nokkuð var um kvartanir íbúa í nágrenninu vegna hávaða frá hátíðinni, en tilkynningarnar voru vel á annan tug.