7 Maí 2015 12:01

Nú þegar reiðhjólum fer óðum fjölgandi í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu með hækkandi sól, er full ástæða til að hvetja reiðhjólamenn, líkt og aðra vegfarendur, til að fara varlega og sýna tillitssemi í hvívetna. Hið góða átak Hjólað í vinnuna hófst enn fremur formlega í gær, en viðbúið er að margir taki þátt. Það er því ekki að ástæðulausu sem lögreglan viðhefur fyrrnefnd varnaðarorð, en í vor hafa borist ábendingar um ýmislegt, sem má betur fara hjá reiðhjólamönnum. Þar undir falla kvartanir, og ekki síður áhyggjur, af þeim sem þykja fara alltof hratt. Göngu- og hjólreiðastígar, m.a. í Fossvogi, hafa sérstaklega verið nefndir í þessu sambandi, en einn tilkynnandi sagði suma hjólreiðamenn fara um þá á ógnarhraða og stefna bæði sjálfum sér og öðrum vegfarendum í stórhættu. Lögreglan biður þá hjólreiðamenn sem um er rætt að taka þetta til sín, hjóla hægar og sýna öðrum vegfarendum meiri tillitssemi.

Þess má geta að á síðasta ári bárust Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hátt í eitt hundrað tilkynningar um reiðhjólaslys í umdæminu. Í næstum helmingi tilvika áttu slysin sér stað þegar bifreið var ekið á reiðhjólamann, en af öðrum tilvikum má nefna slys sem urðu þegar reiðhjól rákust saman, eða þegar reiðhjólamaður ók á gangandi vegfaranda. Um þriðjungur allra reiðhjólaslysa var samkvæmt skráningu flokkað sem fall af reiðhjóli.