29 Janúar 2008 12:00

Lögreglumenn á svæðisstöðinni í Grafarvogi minna foreldra og forráðamanna barna í hverfinu á útivistarreglunar og hvetja alla til að fara eftir þeim. Þetta kemur fram í bréfi sem svæðisstjórinn og hverfislögreglumaðurinn hafa skrifað en í því er einnig vikið að áfengisneyslu, skemmdarverkum og hnupli.

Lögreglumennirnir minna líka á að börnin læra það sem fyrir þeim er haft og segja að foreldrarnir séu í aðalhlutverki þegar fyrirmyndir eru annars vegar. Ábyrgð þeirra sé því mikil þegar kemur að reglum, viðhorfum og hegðun.

Bréf lögreglunnar í Grafarvogi má lesa með því að smella hér.