25 Nóvember 2022 19:11

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð fyrir svokölluðum aðgerðadögum í vikunni, en að þeim loknum höfðu um fimmtíu manns fengið stöðu sakbornings vegna ýmissa mála. Um er að ræða meint brot sem snúa m.a. að vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna, þjófnuðum, skjalafalsi, hilmingu, peningaþvætti, vopnalögum og lögum um útlendinga. Á meðal þess sem var haldlagt voru nokkrir tugir kílóa af kannabis, auk fjölda kannabisplantna sem lögreglan tók í sína vörslu þegar kannabisræktanir voru stöðvaðar í umdæminu.

Þess má geta að á sama tíma var einnig ráðist í samskonar aðgerðir í öðrum löndum Evrópu, en lögregluaðgerðirnar bæði ytra og á höfuðborgarsvæðinu voru haldnar að tilstuðlan Europol. Slíkir aðgerðadagar eru vel þekktir hjá Europol og hefur íslenska lögreglan áður tekið þátt í þeim.