20 Apríl 2022 11:54

Stefnt er að því að hífa flugvélina TF-ABB upp úr Þingvallavatni á föstudaginn 22. apríl. Undirbúningur hefur staði yfir frá því ís hvarf af Þingvallavatni. Gert er ráð fyrir að unnið verði að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða á fimmtudaginn 21. apríl. Setja þarf upp tjaldbúðir með aðstöðu fyrir björgunarmenn, öryggisbúnaður vegna köfunar. Einnig verður Björninn fjarskiptabíll Landsbjargar á vettvangi til að tryggja fjarskipti. Auk þessa eru prammar sem nýttir verða sem aðstaða úti á vatninu og einnig til að hífa flugvéla af botni Þingvallavatns og færa að landi.
Gert er ráð fyrir að aðgerðir á svæðinu hefjist með sjósetningu og prófunum á tækjabúnaði kl 9:00 föstudaginn 22. apríl.
Aðgengi fjölmiðla verður heimilt þar til að björgunaraðgerðir hefjast þá verður sett upp innri lokun sem allir eru beðnir um að virða.
Vegna aðstæðna á vettvangi í dag verður óviðkomandi ökutækjum ekki hleypt niður á slóðann að svæðinu.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákveðið að banna yfirflug allra loftfara um svæðið frá kl. 08:00 í föstudagsmorgun og þar til aðgerðum er lokið. Fyrir liggur að nota þarf dróna lögreglu við aðgerðina og eins mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera í viðbragðsstöðu til flugs á vettvang ef þarf.
Gefnar verða út fréttatilkynningar kl. 11:30 og kl. 15:30 á föstudaginn og oftar ef þurfa þykir.