8 Júní 2019 18:01
Fjórir eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, en fjórmenningarnir, sem voru handteknir í gær, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. júní á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókn lögreglu snýr m.a. að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, en ráðist var í níu húsleitir vegna þessa og var því um mjög viðamiklar aðgerðir að ræða. Alls voru sjö handteknir og hafa fjórir þeirra verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði.
 
Rannsókn málsins er á frumstigi og lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.