9 Febrúar 2022 17:25

Veður og færð hamlaði aðgerðum við björgun í gærkvöldi og í morgun og því hófust framkvæmdir á vettvangi við Ölfusvatnsvík ekki fyrr en í birtingu í morgun.

Í dag hefur verið unnið að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða sem fyrirhugað er að hefjist á morgun.   Settar hafa verið upp tjaldbúðir með aðstöðu fyrir björgunarmenn, á vettvangi verður gámur með jafnþrýstiklefa fyrir kafara og  einnig verður „Björninn“  fjarskiptabíll Landsbjargar á vettvangi til sérhæfðra fjarskipta.  Þá er annar búnaður sem fylgir starfsemi Köfunarþjónustunnar ehf og eins frá Sjótækni ehf og er nauðsynlegur vegna notkunar á prömmum fyrirtækjanna við björgunaraðgerðir.

Gert er ráð fyrir að allir aðilar verði með sinn búnað tilbúinn á vettvangi kl. 09:00 í fyrramálið.  Þá munu fara fram þær prófanir sem ekki er hægt að gera fyrirfram og í framhaldi af því hefjast aðgerðir á því að bjarga líkum af botni vatnsins.   Takist að ná þeim upp verða þau flutt beint til Reykjavíkur.  Þar mun réttarlæknir framkvæma líkskoðun og í framhaldi af því verður aðstandendum gefinn kostur á að eiga stund, hver með sínu fólki.

Ekki er reiknað með að farið verði í aðgerðir til að hífa flugvélina upp á morgun en mögulega verður kafað að flakinu og undirbúningur hafinn.  Gangi allt að óskum er þess vænst að flugvélin verði hífð upp seinni part föstudags.

Öll þessi aðgerð er nákvæmnisverk og síðustu dagar hafa verið nýttir til ítarlegs undirbúnings  sem hefur það að megin markmiði að tryggja öryggi björgunarmanna og síðan að leggja áherslu á að ná líkunum upp úr vatninu.  Þá liggur fyrir að Þingvallaþjóðgarður er á heimsminjaskrá og að í Þingvallavatni er viðkvæmt lífríki sem þarf að vernda.  Því hefur undirbúningur miðast að því tryggja að því lífríki sé ekki hætta búin.  Allar aðgerðir eru afmarkaðar í skrefum þar sem einstakir rannsóknarþættir verða framkvæmdir og sönnunargögn tryggð.

Veðurspá er okkur hliðholl en þó má vænta einhverra élja eftir miðjan dag á morgun.   Verði mat manna á vettvangi þannig að ekki náist að tryggja öryggi kafara verður aðgerðum frestað.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákveðið að banna yfirflug allra loftfara um svæðið frá kl. 09:00 í fyrramálið til kl. 18:00 og aftur á föstudagsmorgun á sama tima.   Fyrir liggur að nota þarf dróna lögreglu við aðgerðina og eins mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera í viðbragðsstöðu til flugs á vettvang ef þarf.