4 Apríl 2022 10:47

Að venju var ýmislegt að fást við á helgarvaktinni, en tuttugu og fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu. Þá var tilkynnt um þrettán líkamsárásir, þar af þrjár alvarlegar, og farið var í sjö útköll vegna heimilisofbeldis. Eitt innbrot var skráð hjá lögreglu um helgina og þrjú þjófnaðarmál í verslunum. Loks má nefna að fjarlægð voru skráningarnúmer af þrjátíu bílum í umdæminu, en þeir voru ýmist ótryggðir eða óskoðaðir.