29 Desember 2017 16:05

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2017. Hafa ber þann fyrirvara á þessum upplýsingum að tölur fyrir árið 2017 eiga enn eftir að breytast. Þessar upplýsingar gefa þó innsýn í það hvert stefnir.

Bæði hegningarlaga- og sérrefsilagabrotum fjölgaði á milli ára, en umferðarlagabrotum fækkaði hins vegar á sama tímabili. Lesa má um þetta og ýmislegt fleira í fyrrnefndri samantekt lögreglunnar.

Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2017 – Bráðabirgðatölur