24 Ágúst 2008 12:00

Tæplega tuttugu unglingar voru færðir í sérstakt athvarf á Menningarnótt og er það svipaður fjöldi og í fyrra. Hringt var í foreldra þeirra og þeim gert að sækja krakkana en ástand sumra var slæmt sökum ölvunar. Það var hópur svæðislögreglumanna sem hélt úti öflugu eftirliti í gærkvöld og nótt en tilgangur þess var að vinna gegn ólöglegri útivist og áfengisdrykkju. Afskipti voru höfð af fjölmörgum unglingum en þeir sem höfðu ekki aldur til að vera úti við var vísað heim eða færðir í athvarf. Þá var miklu magni af áfengi hellt niður en lögreglan tók áfengi af u.þ.b. 150 unglingum. Almennt séð var ekki mikið um brot á lögum um útivistartíma en þeim mun meira um brot á áfengislögum.

Þrátt fyrir það sem hér er nefnt voru lögreglumenn almennt nokkuð sáttir með ástandið en ölvun var vissulega nokkur og því meiri sem leið á nóttina.