10 Janúar 2012 12:00

Lögreglan minnir fólk á að fara varlega í umferðinni enda er hálka á öllum vegum. Samhliða þessu er líka minnt á mikilvægi þess að hreinsa hrím og/eða snjó af bílrúðum og ljósum þegar svo ber undir. Sé það ekki gert setja hinir sömu sjálfa sig og aðra vegfarendur í hættu með takmörkuðu útsýni. Að síðustu skal það nefnt að ökutæki skulu búin til vetraraksturs enda gáleysi að aka um á slitnum sumardekkjum um hávetur. Þess eru þó því miður of mörg dæmi um.

Fjölmargir árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu þessa fyrstu daga ársins.