15 Júní 2012 12:00

Til að umferðin gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir ökumenn virði umferðarlögin. Á þessu er stundum misbrestur og dæmi um það er karl um þrítugt sem lögreglan stöðvaði á Sæbraut í Reykjavík um fimmleytið síðdegis í gær. Sá ók vinnuvél og fór eðlilega hægt yfir. Olli þetta nokkrum vandræðum og tafði fyrir umferð en maðurinn var látinn færa vélina af veginum. Vinnuvélin var síðan kyrrsett og ökumanninum jafnframt bannað að aka áfram en sá reyndist ekki hafa tilskilin vinnuvélaréttindi. Minnt er á að allvíða eru sérstakar takmarkanir vegna hægfara ökutækja. Á Sæbraut er t.d. umferð hægfara dráttarvéla og vinnuvéla bönnuð á tilteknum tíma virka daga, bæði á morgnana (7.30-9.30) og síðdegis (15.30-18.30). Það er ennfremur auglýst skilmerkilega á umferðarmerkjum og átti svo við í þessu tilfelli á Sæbraut.