7 Ágúst 2007 12:00

Tólf ökumenn voru teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Þetta voru allt karlmenn, flestir á þrítugs- og fertugsaldri. Tveir voru stöðvaðir í Kópavogi en hinir tíu víðsvegar í Reykjavík.

Annar ökumannanna sem var tekinn fyrir þessar sakir í Kópavogi var stöðvaður fyrir þetta brot tvisvar sinnum á innan við sólarhring. Hann var fyrst tekinn við Smáralind eftir hádegi á sunnudag og svo aftur á Dalvegi snemma á mánudagsmorgun.