7 Janúar 2008 12:00

Fimm ökumenn, allt karlar, voru teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sá yngsti þeirra, sem er tæplega hálfþrítugur, var stöðvaður í Háaleitishverfi en í bíl hans fundust ætluð fíkniefni. Í framhaldinu var leitað á heimili mannsins en þar fundust bæði e-töflur og talsvert af reiðufé. Annar maður, litlu eldri, var stöðvaður við akstur í  Hlíðunum og reyndist sá einnig undir áhrifum fíkniefna. Viðkomandi reyndist jafnframt þegar hafa verið sviptur ökuleyfi en þess má geta að maðurinn tók fljótlega upp fyrri iðju eftir að hafa verið sleppt úr fangageymslu og settist aftur undir stýri. Hann var því handtekinn öðru sinni og færður í fangageymslu á nýjan leik. Þriðji maðurinn, sem er rúmlega þrítugur, var stöðvaður á Vesturlandsvegi en hann var sömuleiðis í annarlegu ástandi og líkt og sá í Hlíðunum hafði þessi þegar verið sviptur ökuleyfi.

Fjórði maðurinn, sem er fertugur, var handtekinn í Kópavogi en í bíl hans fundust ætluð fíkniefni sem og töluvert af verkfærum en líklegt þykir að þau séu illa fengin. Loks var maður á fimmtugsaldri handsamaður á Miklubraut en aksturslag hans þótti í meira lagi grunsamlegt. Þegar að var gáð reyndist ökumaðurinn í annarlegu ástandi.