30 September 2016 16:27

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir ágústmánuð 2016 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

 Í ágúst voru skráðar 626 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu, sem er fækkun á milli mánaða. Lögreglunni bárust 282 tilkynningar um þjófnaði sem gerir um 45 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota í ágúst. Eru það aðeins færri tilkynningar en bárust síðustu þrjá mánuði á undan. Tilkynnt var um 47 innbrot í ágúst og hefur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ekki borist jafn fáar tilkynningar í einum mánuði frá því að samræmdar skráningar brota hófust hjá lögreglu árið 1999. Tilkynntum kynferiðsbrotum fækkað töluvert á milli mánaða. Tilkynnt var um sex kynferðisbrot sem áttu sér stað í ágústmánuði, sem eru um fimm sinnum færri brot en í júlí.