17 Maí 2017 15:20

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir aprílmánuð 2017 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 655 tilkynningar um hegningarlagabrot í apríl. Af hegningarlagabrotum fækkaði þjófnuðum, ofbeldisbrotum gagnvart lögreglumönnum og kynferðisbrotum miðað við meðalfjölda síðustu sex mánuði á undan. Fíkniefnabrotum og umferðarlagabrotum fjölgaði hins vegar nokkuð. Sérstaklega fjölgaði brotum þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem skýrir fjölgun fíkniefnabrota að einhverju leiti. Í apríl voru skráð 144 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og 105 brot þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Ekki hafa verið skráð jafn mörg brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna eftir að ný lög tóku gildi árið 2006 sem höfðu í för með sér að verklag lögreglu breyttist í þessum málum. Að sama skapi þarf að leita aftur til nóvember 2008 til að finna fleiri ölvunarakstursbrot en skráð voru í apríl síðastliðnum. Þessi mikla fjölgun brota er afrakstur sérstaks átaks sem farið var í á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem nær frá Seltjarnarnesi að Elliðaám.