18 Júlí 2019 13:59

Skráð voru 698 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní og fækkar þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2019.
Þá kemur fram að á tímabilinu hafi heilt yfir orðið litlar breytingar á fjölda þeirra brota sem horft er sérstaklega til í skýrslunni.

Í júní fjölgaði skráðum umferðarlagabrotum mikið, en á milli mánaða fjölgaði þeim um 26 prósent. Alls voru skráð 194 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ekki hafa verið skráð jafn mörg tilvik síðan lögum og verklagi lögreglu vegna aksturs undir áhrifum ávana– og fíkniefna var breytt árið 2006. Sama gildir um brot þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur en það sem af er ári hafa verið skráð um 18 prósent fleiri brot en voru skráð að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Líkt og í maí er fjöldi kynferðisafbrota mikið hærri en vanalega og má rekja þessa fjölgun til aðgerða lögreglunnar í vændismálum. Undanfarnar vikur hefur LRH verið í sérstökum aðgerðum tengt mansali en vændi er ein af birtingarmyndum mansals. Þetta er einn af þeim þáttum í skipulagðri brotastarfsemi sem LRH leggur mikla áherslu á.