23 Nóvember 2022 17:24

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri árás í miðborginni undir miðnætti sl. fimmtudagskvöld miðar vel, en hún hefur verið í algjörum forgangi frá því að málið kom upp. Tugir lögreglumanna hafa unnið sleitulaust að rannsókn málsins, auk þess sem embættið hefur jafnframt notið góðrar aðstoðar annarra lögregluliða vegna þessa. Í fyrrnefndu máli voru þrír menn stungnir á skemmtistað í Bankastræti, eins og fram hefur komið, en að þeim réðst fjölmennur hópur manna. Árásarmennirnir voru um þrjátíu talsins, þótt þeir hafi haft sig mismikið í frammi. Ekki síst í ljósi þessa fjölda er um mjög umfangsmikla rannsókn að ræða, en þrjátíu hafa verið handteknir í þágu hennar. Sextán hafa enn fremur verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, ýmist í eina viku eða tvær, en einum hefur verið sleppt. Núna eru því fimmtán í haldi lögreglu, en sá yngsti þeirra er sautján ára en sá elsti er á fertugsaldri. Fáheyrt er að svo margir sitji í gæsluvarðhaldi í einu og sama málinu. 

Samhliða eru til rannsóknar tilvik um hótanir og skemmdarverk á íbúðarhúsnæði undanfarna daga, sem talin eru tengjast árásinni í miðborginni, en þau hafa skapað mikla hættu. Eftir að málið kom upp hefur lögreglan aukið viðbúnað sinn og svo verður áfram og munu þess t.d. sjást merki um komandi helgi vegna þeirra hótana sem settar hafa verið fram. 

Umfjöllun fjölmiðla um málið hefur verið mikil, eins og við má búast þegar svo alvarlegt mál á sér stað. Lögreglan hefur lagt mikla áherslu á að vera til svara og miðla þannig upplýsingum til almennings í gegnum fjölmiðla eins mikið og tök eru á. Því tengdu má nefna að lögreglan skoðar hvernig myndefni af árásinni í miðborginni rataði í fjölmiðla og hvort starfsmaður hennar hafi átt þar hlut að máli. Slíkt er litið alvarlegum augum og er það til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, sem var þegar gert viðvart vegna þessa.