30 Apríl 2020 18:38

Sautján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 28. maí, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Breiðholti í síðustu viku. Pilturinn er vistaður á viðeigandi stofnun.

Rannsókn málsins miðar vel.