10 Desember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann amfetamín í íbúð í miðborginni um helgina, en um allnokkuð magn var að ræða. Tveir karlar og ein kona voru handtekin í þágu rannsóknarinnar, en þau voru öll í íbúðinni þegar lögreglan kom á vettvang og framkvæmdi húsleit. Fólkið hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.